Upplausn Lyrics

Album: Vitrun

Sprungið malbik

hrími þakið

Kyrr vetrarnótt

þögninni raskað

Flöktandi lampar

kasta stjörnum á götuna

Tjörusvartur himininn kraumar

Á hægri hönd er kyrrlátt þorpið sem ól mig

Til vinstri, mosavaxið hraunið

Fram renna skuggar

sem elta bráð

til þess eins að finna hjartað slá

Þeir líða á milli yfirgefinna húsa

og hörfa þegar rödd

berst úr hrauninu

Andlitið mosagróið og máð

næstum kunnuglegt

Svo mælir steinninn

í miðri auðninni

Svo mælir steinninn

en ekki greinist orða skil

þegar regnið byrjar að falla

„Sá sem útbýr hreiður

mun yfirgefa það

Sá sem græðir jörð

mun brenna hana“

Stefnulausar götur

auðar og sprungnar

munu ekki leiða neinn

til betrunar

Þykkri eðju rignir niður

sem terpentína á málverk

úr húsunum skríður fólk

og dansar

Þau baða út örmunum

breiða úr fálmurum

teygja úr vængjunum

og fagna upplausninni

„Sá sem útbýr hreiður

mun yfirgefa það

Sá sem græðir jörð

mun brenna hana

Sá sem elur fé

mun svelta það

Sá sem grefur brunn

mun eitra hann“

Hold mun visna

sýn mun fjara

vit mun þverra

bein munu molna

Eftir stendur

berstrípað hraunið

og stjörnurnar á götunni