III. Odium Somniferum Lyrics


iii. i. Hljóðs bið ég allar

óhelgar kindir,

meiri og minni

mögu Aurgelmis

ii. Sá sem hefur eyra,

hann heyri

Þeir sem ei hlusta

skulu áfram leir vera

iii. Frjáls

frá prísund holdsins

laus

úr búri hugans

iv. Á brún heimsins

er jafn langt til himins og heljar

Tómið sem slær bak rifjum þínum

mun leiða þig að pyttnum mikla

v. Þú fellur niður frá jörðu!

Ég stend við svarta hliðið!

vi. Frummyrkrið

mun gleypa allt

sem er og hefur verið

vii. Það logar enn

í brjósti þér

þráir að brjótast út

viii. Gakktu inn

í dimmt fjallið

Gakktu inn

í þrúgandi dýpið

ix. Þú sem leitar

þú sem kvelst

Rita þú í bók það

sem þú sérð

x. Ámáttleg sjón

ósvikin

ójarðnesk hljóð

vekja upp óhug

xi. Þungi fjallsins

sligar þig

ei bugast, ei brotna

umberðu í nokkra stund

xii. Phlegethon brennur

í æðum þínum

lát blóðið lýsa þér leið

xiii. Lof sé jörðinni og hafinu,

því djöfullinn er stiginn niður til oss

því hann veit, að hann hefur nauman tíma.

xiv. Visita Interiora Tartaros Rectificando Invenies Occultum Lapidem