II. Metamorphoses Maleficarum Lyrics


ii.i. Þögul för

vegurinn þakinn þyrnum

Þrír varðmenn

blóðþyrstir, blindir

ii. Hljóður læðist hjá

þagmælskan þrúgandi

gulls ígildi

iii. Skerandi ljós

blindar mig

læstar dyr

standa mér opnar

iv. Leiðin handan

liggur djúpt

í frjálsu falli

ég glatast

v. Hugdjarft flón

sleppir hiklaust taki

ráfandi, villtur

að útgönguleið

vi. Vitund mín klofnar

dauðinn fölnar

sandur stundaglassins

seitlar úr höfði mér

vii. Auga mitt sokkið

hálfur í þessum heimi

Líflaus tóft fær séð

sem mönnum er hulið

viii. Aftaka dyggðar

réttlæti fullnægt

Flugnasuð,

vein manna

ix. Myrkur geislabaugur

krýnir höfuð mitt

Augu þín tendruð

dómsdagsbálið

x. Fjarri harmi

ásýnd þín yljar mér

leggst upp að barmi

djúpt í faðmi þér

xi. Blóðug mein

af heljarskörum hylltur

Ástríðukvein

Trylltur

xii. Og ég herði að kverkum þér

koss okkar mettaður dreyra

Og þú herðir að kverkum mér

hvíslar mér hröfnum í eyra

—

xiii. Átthyrnda sól!

Kallaðu nafn mitt!

Morgunstjarnan hungrar

xiv. Níu dagar

og níu nætur

blóð kallar

á blóð

xv. Gegn níu hlið hrjáður,

hef ég gengið dyggur

sem völvuþráður

í nálarauga liggur

xvi. Frá skuggaós

streymir allur minn styrkur

Það skærasta ljós

skapar dýpsta myrkur