II. Ars Moriendi Lyrics


ii. i. Mara á brjósti mér

hlær

strýkur mér um

stjarfan vanga

ii. Svefndauður

andvaka

hvít gríma lögð á andlit mitt

iii. Svartur eldur

logar úr brjósti mér

ég reyni að öskra

en maran hlær

iv. kaldar hendur, kaldar klær

toga þig niður

drukknaðar sálir, örvona

toga dýpra og dýpra

v. Jarðarfararmold

skríður um þig, skríður inn í þig

lifandi étur þig dauðan

iðandi ormar iðrast

vi. Þrútið hræ gall storknaðir vessar

blómstraðu

skinn og bein, skinn og vein

skorpnar varir berar tennur

vii. Sem ljár fellir korn

og naðra hleypir ham

rotnar af mér

aur jarðar

viii. Við beinaströnd

situr jötna far

ferjan dökka

bíður mín

ix. Ég slít úr höfði mér

ríf af himnum ofan

blóðugt fargjald

silfrað ennitungl

x. Haturs fljót

ólgandi stormur

nístandi öldurót

það kallar, það hvíslar

xi. Dregur mig nær

Dregur mig nær!

Dregur mig...

xii. Óminnisvatn

hreinsar morkinn huga

þyngsli mörunnar

af mér létt

xiii. Ég geng

um aldir alda

meðal hinna

gleymdu dauðu

xiv. Bein mín gulnuð

ég hósta

ryki og mold

ég dreg andann á ný

xv. Grafardróttinn!

Ég ákalla þig!

xvi. Láttu mig lausan!

Veittu mér dauðann!

xvii. Hún situr mig enn

þung á brjósti

og hlær holum tóni

xviii. Ormétinn

maðkaþvagan titrar

í takt

við hjartslátt minn

xix. Svartasta ljós!

xx. Stoðir hrynja

auðnin rís

endinum náð

xxi. Dauðrahersir

reisir mig við

yfir föla kúpu

dregur hann andlit mitt

xxii. Hvaða leið

sem við kjósum að feta

er einungis glötun

sem bíður við leiðarenda