I. Vitriol Lyrics


i.i. Kyrrð

rofin

drungi aldanna

leggst yfir mig

ii. Neðar undirheimum

er uppsprettan

er endirinn

iii. Nágríman fellur

ég hníg niður

örmagna

en ég eygi í fjarska

náttröðul

iv. Blindandi tóm

v. Það teygir sig

óendanlega

hvert sem ég lít

gnæfir það

drottnar

yfir djúpinu

vi. Svarta hliðið

Ég lýk því upp

vii. Gin dýrsins

gleypir mig

ærir mig

viii. Eiturgufur

svíða burt

kvikasilfurslogar

hreinsa

ix. Auðir salir

rykfallnir

innantómt bergmál

ómar

x. Löng steinborð

útbúin skorpnuðum skrokkum

hver bikar tómur

hvert sæti autt

xi. Heyrirðu nú?

nístandi surg

sem sker inn að beini

inn að kviku

xii. Er orðið að öskri

öskri sem nötrar

rauð elding

klýfur

xiii. Berstrípaður

af klyfjum jarðar

sækja á mig

endurminningar

xiv. Hlautsteinninn bíður

þyrstir

litaður

af fornum blótum

xv. Biturt bragð

er af eigin blaði

Funagögull flæðir

xvi. Úr steininum streyma

svartir vessar

Þeir blæða aftur

inn í mig

xvii. Svartnættið

er líf mitt

Hyldýpið

er sál mín